top of page
raunvit-logo.png

RaunVit ehf.
Almennir skilmálar - Tollmiðlun

Skilmálar þessir skulu gilda um þá þjónustu sem Raunvit ehf. tekur að sér sem tollmiðlari fyrir viðskiptamann, hvort sem greitt er fyrir þjónustuna eða ekki.

Tollafgreiða skal vöru sem flutt er til og frá landinu í samræmi við ákvæði gildandi tollalaga á hverjum tíma. Tollafgreiðsla vöru er fólgin í að ljúka þeim formsatriðum/skjalagerð sem áskilin er í tollalögum til þess að heimilt sé að afhenda vöru til nota innanlands, til umflutnings eða til útflutnings.

1. Skilgreiningar
Í skilmálum þessum skulu eftirfarandi hugtök hafa þessa merkingu:

„Aðflutningsgjöld“ þýðir allur tollur og aðrir skattar, gjöld og kostnað sem ber að greiða við tollmeðferð vöru við inn eða útflutning, sem og vextir og kostnaður sem fellur á slík gjöld.
„Dótturfélag“ þýðir önnur félög sem félagið á meirihluta í og/eða fer með meirihluta atkvæða og/eða á að fullu hverju sinni.
„Félagið“ þýðir Raunvit ehf., kt. 611112-0760, Reynihvammi 5, 700 Egilstöðum, Íslandi og dótturfélög þess, svo og hvern þann sem starfar sem starfs eða umboðsmaður eða á annan hátt í þágu félagsins eða dótturfélags þess.

„SDR“ er sú alþjóðlega verðmæliseining sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn notar og skal reikna verðmæliseiningu þessa til íslensks gjaldeyris eftir gengi þess dags er greiðsla fer fram.

„Tollalög“ þýðir tollalög nr. 88/2005 með síðari breytingum sem og reglugerðir, reglur og önnur stjórnvaldsfyrirmæli sett á grundvelli framangreindra laga.

„Tollskjöl“ þýðir tollskýrsla og önnur skjöl sem láta ber í té við tollafgreiðslu eftir því sem mælt er fyrir um í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum, hvort sem þau eru í bréflegu eða rafrænu formi.

„Vara“ þýðir hver sá hlutur eða hlutir sem skráðir eru í einstaka tollskýrslu og geta hlotið tollmeðferð samkvæmt tollskrá.

„Viðskiptamaður“ þýðir einstaklingur eða lögpersóna og merkir þann sem óskað hefur eftir því við félagið að það komi fram fyrir hans hönd gagnvart tollyfirvöldum í þeim tilgangi að inna af hendi þá þjónustu sem félagið má veita sem tollmiðlari samkvæmt tollalögum svo og hvern þann sem starfar sem starfs- eða umboðsmaður eða á annan hátt í hans þágu.
„Vörureikningur“ þýðir sá vörureikningur sem viðskiptamaður afhendir félaginu upphaflega í þeim tilgangi að ákvarða tollverð viðkomandi vöru.

„Þjónusta“ þýðir öll verk eða hluti þeirra sem félagið tekur að sér fyrir viðskiptamann og falla innan þess hlutverks að koma fram gagnvart tollyfirvöldum og annast þá þjónustu sem kveðið er um í 4. gr.


2. Gildissvið.
Skilmálar þessir, þar á meðal undanþágur frá ábyrgð, varnir, réttindi og ábyrgðartakmarkanir, skulu gilda í hverskyns málarekstri gegn félaginu hvort sem krafan byggist á samningi eða skaðabótaskyldum verknaði utan samninga og jafnvel þótt bótaskylda hafi stofnast vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis eða höfnun samnings eða verulegra vanefnda.

Skilmálar þessir skuli gilda um réttarsamband viðskiptamanns og félagsins sem og réttarsamband eiganda vöru, sem félagið hefur tekið að sér að tollafgreiða, og félagsins sé eigandi hennar ekki jafnframt viðskiptamaður.

3. Umboð.
Félagið hefur starfsleyfi sem tollmiðlari samkvæmt gildandi tollalögum og hefur því heimild samkvæmt tollalögum til þess að koma fram sem umboðsmaður viðskiptavina sinna gagnvart tollyfirvöldum við tollafgreiðslu á vörum sem fluttar eru til Íslands og úr landinu.
Með því að óska eftir því að félagið annist tollafgreiðslu fyrir hönd viðskiptamanns veitir viðskiptamaður félaginu fullt og ótakmarkað umboð til að koma fram fyrir hans hönd gagnvart tollyfirvöldum í samræmi við heimildir tollalaga, til að undirrita skuldbindandi ábyrgðaryfirlýsingu á tollskýrslu yfir vöru sem tollafgreidd er í nafni viðskiptamanns og til að óska eftir skuldfærslu hjá viðskiptamanni á aðflutningsgjöldum vegna þeirrar vöru sem tollafgreidd er í nafni viðskiptamanns í samræmi við þær heimildir sem viðskiptamaður hefur til greiðslufrests á aðflutningsgjöldum hjá tollyfirvöldum.

4. Þjónusta félagsins.

Þjónusta félagsins sem tollmiðlari á grundvelli umboðs samkvæmt 3. gr. er takmörkuð við eftirfarandi þjónustu, eftir því sem við á og viðskiptamaður óskar eftir hverju sinni:
1.    Ráðgjöf við gerð tollskjala, svo sem tollflokkun og útreikning aðflutningsgjalda.
2.    Tollskýrslugerð vegna inn- og útflutnings.
3.    Beiðni um tollafgreiðslu vöru með skjalsendingum á milli tölva (SMT-tollafgreiðslu). 
4.    Greiðslu aðflutningsgjalda fyrir hönd viðskiptamanns.
Framangreind upptalning er tæmandi talin og afmarkast við skyldur félagsins sem tollmiðlari samkvæmt gildandi tollalögum.

Félagið skuldbindur sig til þess að veita þá þjónustu, sem það tekur að sér fyrir viðskiptamann, á eðlilegan og vandvirkan hátt og viðhalda trúnaði. Þá skuldbindur félagið sig til að uppfylla skilyrði tollalaga fyrir veitingu starfsleyfis til tollmiðlunar.

Félagið skuldbindur sig til þess að senda viðskiptamanni afrit af öllum tollskjölum til yfirferðar eigi síðar en fimmtán (15) dögum eftir að beiðni um tollafgreiðslu hefur verið send tollstjóra.
Félagið leggur sjálfsætt mat á hvort tollskjöl og þau fylgiskjöl og aðrar upplýsingar sem viðskiptamaður leggur fram til grundvallar tollskýrslugerð fullnægja ákvæðum tollalaga. Ef skjöl og upplýsingar eru ekki fullnægjandi að mati félagsins kallar það eftir því sem á vantar eða nýjum gögnum í stað þeirra sem félagið telur ófullnægjandi. Beiðni um tollafgreiðslu mun ekki fara fram fyrr en slík gögn eða upplýsingar hafa borist félaginu.

 

Ef félagið verður þess vart að viðskiptamaður afhendir vísvitandi röng eða ófullnægjandi gögn eða upplýsingar mun félagið tilkynna þegar í stað um það til yfirvalda.

5. Ábyrgð félagsins

Félagið ber skaðabótaábyrgð eftir almennum reglum skaðabótaréttar á beinu tjóni viðskiptamanns, sem rekja má til ásetnings eða stórfellds gáleysis félagsins eða manna sem það ber ábyrgð á, með þeim undantekningum sem fram koma í skilmálum þessum. Sönnunarbyrði um skaðabótaábyrgð félagins hvílir á þeim sem heldur því fram að félagið beri ábyrgð.

6. Undanþága frá ábyrgð 6.1. Ábyrgðarleysisástæður
Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á tjóni, sem rekja má til einhverra neðangreindra orsaka:
1. Rangra eða ónákvæmra gagna eða upplýsinga frá viðskiptamanni. 2. Gagna eða upplýsinga sem viðskiptamaður hefur leynt félaginu.
3. Viðskiptaverð vöru er ekki talið uppfylla ákvæði V. kafla tollalaga.
4. Ef óskað hefur verið eftir bindandi áliti um tollflokkun samkvæmt 21. gr. tollalaga og ákvörðun um bindandi tollflokkun er afturkölluð af tollstjóra eða henni breytt eftir kæru til ríkistollanefndar.
5. Viðskiptamaður sinnir ekki upplýsingaskyldu gagnvart tollyfirvöldum eða tregðast við að veita aðstoð sem honum ber að veita tollyfirvöldum samkvæmt tollalögum.
6. Vanskila viðskiptamanns með aðflutningsgjöld, dráttarvexti eða annan kostnað og/eða önnur gjöld.
7. Brota viðskiptamanns eða manna á hans vegum á ákvæðum skilmála þessara og/eða umboði og/eða samningi aðila.
8. Gáleysi eða ásetning viðskiptamanns eða manna á hans vegum.
9. Óviðráðanlegra ytri atvika, sem ekki verður séð fyrir og ekki er unnt að koma í veg fyrir (Force Majure).

6.2. Tafir og/eða seinkun.
Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á beinu, óbeinu eða afleiddu tjóni, kostnaði eða skemmdum, sem orsakast vegna tafa eða seinkunar á tollafgreiðslu.
6.3. Óbeint eða afleitt tjón.

Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni eða ágóðatapi.
7. Ábyrgðartakmörkun.

Komi til þess að félagið beri skaðabótaábyrgð vegna tollafgreiðslu vöru skulu skaðabætur ekki vera hærri en sem nemur fimmfaldri þóknun félagsins fyrir tollafgreiðslu viðkomandi vöru.

Sé ekki hægt að staðreyna þóknun félagsins og þar af leiðandi framangreinda takmörkunarfjárhæð skulu skaðabætur ekki vera hærri en sem nemur SDR 500 (fimmhundruð) vegna hvers tjóns eða fleiri tjóna ef orsök þeirra er sú sama.

 

8. Eigin sök viðskiptamanns.

Bætur til viðskiptamanns skal lækka eða fella niður ef sannað er að viðskiptamaður eða einhver á hans vegum hefur verið meðvaldur að tjóninu vegna ásetnings eða gáleysis. Auk þess ber viðskiptamanni í öllum tilvikum að takmarka tjón sitt í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar.

9. Vextir.
Ekki skal koma til greiðslu vaxta af kröfum á hendur félaginu fyrr en frá uppkvaðningu dóms. 
10. Skyldur viðskiptamanns.

Viðskiptamaður ábyrgist að hann sé eigandi eða rétthafi þeirrar vöru sem beðið er um tollafgreiðslu á eða að hann hafi fullt umboð frá eiganda vörunnar til þess að biðja um tiltekna þjónustu og samþykkja þessa skilmála fyrir hönd eiganda vörunnar.

Viðskiptamaður ber ábyrgð á því að öllum innlendum og erlendum lögum, reglum og hvers konar fyrirmælum yfirvalda varðandi vöruna og þá þjónustu, sem hann óskar eftir að félagið inni af hendi fyrir hann, sé fullnægt eftir því sem við á.
Viðskiptamaður ábyrgist að öll gögn og allar upplýsingar sem hann veitir félaginu og ber að veita, hvort sem þær eru á rafrænu eða skriflegu formi, séu réttar og nákvæmar.  Viðskiptamaður skal gera sér grein fyrir því að á þessum gögnum og upplýsingum byggir félagið þegar það veitir þjónustu sína.

Viðskiptamanni ber að fara yfir öll tollskjöl sem félagið sendir honum samkvæmt 4. gr., hvort sem þau eru skrifleg eða á rafrænu formi, og kanna hvort þau séu rétt og láta félagið vita án dráttar ef þau eru ekki nákvæm eða rétt og ráðleggja félaginu um þau atriði sem lagfæra þarf. Geri viðskiptamaður ekki athugasemd við tollflokkun vöru í tiltekið tollskrárnúmer samkvæmt tollskrá innan tíu (10) daga frá móttöku tollskjala skal gengið út frá því að hún sé rétt og að viðskiptamaður hafi samþykkt viðkomandi tollflokkun og tollafgreiðslu vörunnar.

Viðskiptamaður ber ábyrgð á því að kynna starfs- eða umboðsmönnum sínum eða öðrum sem starfa fyrir hann þessa skilmála.

11. Greiðsla aðflutningsgjalda fyrir hönd viðskiptamanns.

Félagið er ekki undir neinum kringumstæðum skylt að leggja út fyrir viðskiptamann aðflutningsgjöld og ber engin skylda til að greiða aðflutningsgjöld fyrir hans hönd nema viðskiptamaður afhendi félaginu fyrirfram nægilegt fé til þess að standa straum af slíkum greiðslum. Félagið ákveður hverju sinni þá fjárhæð sem viðskiptamanni þarf að greiða samkvæmt framansögðu. Félagið skal halda fénu aðskildu í bókhaldi sínu. Verði afgangur eftir að búið er að greiða aðflutningsgjöld og aðrar kröfur sem félagið kann að eiga á hendur viðskiptamanni skal hann endurgreiddur til viðskiptamanns.


12. Ábyrgð viðskiptamanns.

Viðskiptamaður ábyrgist að hann hafi gilt leyfi tollyfirvalda til greiðslufrests á aðflutningsgjöldum, á hverjum tíma og skuldbindur sig til að tilkynna félaginu með sannanlegum hætti allar breytingar sem kunna að verða gerðar á leyfinu og/eða ef leyfið rennur út á gildistíma umboðs skv. 3. gr. skilmála þessa.


 
Viðskiptamaður skal tilkynna félaginu tafarlaust með sannanlegum hætti ef vanskil verða á aðflutningsgjöldum og ef tollyfiröld synja um leyfi til tollagreiðslu.

Viðskiptamaður ber hlutlæga skaðabótaábyrgð á öllu beinu og óbeinu tjóni sem félagið verður fyrir vegna þess að upplýsingar og/eða gögn sem viðskiptamaður gaf félaginu eru rangar, villandi, ófullnægjandi eða ekki lögum samkvæmt. Að öðru leyti ber viðskiptamaður skaðabótaábyrgð gagnvart félaginu eftir almennum reglum skaðabótaréttar.

Viðskiptamaður er undantekningarlaust ábyrgur fyrir greiðslu aðflutningsgjalda og/eða annarra gjalda samkvæmt tollalögum.  Komi til þess að félagið þurfi að greiða aðflutningsgjöld eða hvers konar aðrar greiðslur samkvæmt ákvörðun tollyfirvalda eða dómstóla vegna rangrar tollflokkunar eða ábyrgðar á grundvelli tollalaga eða annarra atvika, skal viðskiptamaður endurgreiða félaginu slík gjöld eða greiðslur ásamt hæstu lögleyfðu dráttarvöxtum og bæta félaginu þann skaða og kostnað, þar með talið lögfræðikostnað, sem félagið hefur haft af slíkri greiðslu og halda félaginu skaðlausu af öllum afleiðingum þess. Upphaf fyrningarfrests slíkarar endurkröfu skal miðast við þann dag þegar félagið greiðir framangreind gjöld.

13. Þóknun.
Viðskiptamaður skal greiða félaginu þóknun fyrir þau verk og þá þjónustu sem félagið veitir viðskiptamanni. Jafnframt skal viðskiptamaður endurgreiða félaginu allan kostnað sem félagið hefur greitt fyrir hönd viðskiptamanns. Miða skal þóknun og greiðslu hennar við gildandi gjaldskrá félagsins á hverjum tíma ef ekki er um annað samið. Hafi þóknun og/eða útlagður kostnaður ekki verið greiddur á gjalddaga er félaginu heimilt að krefja viðskiptamann um dráttarvexti frá gjalddaga og innheimtukostnað.

14. Tilkynningar um tjón; fyrning.

Viðskiptamaður skal senda félaginu skriflega tilkynningu um tjón, sem hann telur að félagið beri ábyrgð á, jafnskjótt og tjónsins verður vart og í síðasta lagi áður en liðnir eru tíu (10) dagar frá því að hann vissi eða mátti vita um tjónið.  Í framangreindri tilkynningu skal koma skýrt fram um hvaða vöru er að ræða, fjárhæð bótakröfu ef kostur er og ástæðu þess að félaginu er haldið ábyrgu vegna viðkomandi atviks ef við á. Sé ekki tilkynnt um tjón samkvæmt framansögðu skal réttur viðskiptamanns til þess að krefja félagið um bætur vegna atviksins falla niður sökum tómlætis.
Þrátt fyrir framangreind ákvæði um tilkynningu skulu allar kröfur á hendur félaginu falla niður sökum fyrningar innan eins (1) árs frá þeim degi er tollskýrsla var send af stað til tollyfirvalda, hvort sem það var með SMT sendingu eða með öðrum hætti, eða ef það á ekki við frá þeim degi er viðkomandi þjónusta var innt af hendi.
Að öðru leyti skulu almennar reglur gildandi laga um fyrningu kröfuréttindi, gilda um fyringu krafna samkvæmt þessum skilmálum.

15. Uppsögn á viðskiptum.

Vanefni viðskiptamaður skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum verulega eða samning og/eða umboð á þeim byggðum er félaginu heimilt að rifta samningi aðila og/eða umboði um tollafgreiðslu án fyrirvara.

Ef vanefndir eru ekki verulegar skal félaginu heimilt að segja samningi aðila og/eða umboði um tollafgreiðslu upp með fimmtán (15) daga fyrirvara og skal tilkynning þess efnis send viðskiptavini á sannanlegan hátt, þar sem skorað skal á hann að bæta úr annmarkanum innan ofangreinds frests að öðrum kosti falli samningur niður og þar með allar skyldur og öll ábyrgð félagsins.

 

Í öðrum tilvikum en að ofan greinir skal félaginu heimilt að segja samningi aðila og/eða umboði um tollafgreiðslu upp með þrjátíu (30) daga fyrirvara.
16. Sending tilkynninga.

Ef gert er ráð fyrir í skilmálum þessum eða samningi aðila og/eða umboði um tollafgreiðslu að annar hvor aðili skuli senda gagnaðila tilkynningu, hverju nafni sem hún nefnist, þá skal hún send af stað með sannanlegum hætti til þess heimilisfangs sem aðilar hafa gefið upp eða lögheimili þeirra, eins og það er skráð þegar tilkynning er send af stað.  Sé þess gætt skal tilkynningin hafa þá þýðingu og þau réttaráhrif sem henni er ætlað að hafa jafnvel þótt hún komi afbökuð, of seint eða alls ekki til viðtakanda.
17. Lög og lögsaga.

Íslensk lög skulu gilda um skilmála þessa og samning aðila og/eða umboð um tollafgreiðslu. Mál vegna skilmála þessara og samning aðila og/eða umboð um tollafgreiðslu skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

18. Gildistími.
Þessir skilmálar um tollmiðlun skuli taka gildi frá og með 1. Júlí 2024. Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar á skilmálunum skulu taka gildi frá og með þeim degi er breyttir skilmálar eru birtir á heimasíðu félagsins.
 



Umbóð undir https://island.is/minarsidur/adgangsstyring/umbod - Aðgangsstýring - flipp Skrá umboð opnast Veita umboð  Öll kerfi 


 

logo RaunVit ehf_edited_edited_edited.pn

      Reynihvammur 5

      700 Egilsstaðir

      kt. 611112-0760

      VSK nr. 112452

Hafa samband

Tel:+354 823 5560 Tómas Stanislavsson

Tel: +354 776 6310 Elwira R.Wójtowicz

Netfang

Connect

  • Facebook
  • LinkedIn
bottom of page